Innlent

Rosalega gott að vera kominn heim

Jónsi lýkur tónleikaferðalagi sínu 29. desember í Laugardalshöllinni, en hann hefur spilað á 100 tónleikum um allan heim. Fréttablaðið/Stefán
Jónsi lýkur tónleikaferðalagi sínu 29. desember í Laugardalshöllinni, en hann hefur spilað á 100 tónleikum um allan heim. Fréttablaðið/Stefán

Söngvarinn Jónsi er kominn heim eftir langa tónleikaferð en hann var að kynna fyrstu sólóplötuna sína, Go. Jónsi og hljómsveit hans spiluðu á 100 tónleikum um heim allan og ljúka frábæru ferðalagi með tónleikum í Laugardalshöllinni 29. desember.

Söngvarinn Jón Þór Birgisson, betur þekktur sem Jónsi úr Sigur Rós, er kominn heim eftir langa tónleikaferð en hann var að fylgja eftir sinni fyrstu sólóplötu. Platan ber nafnið Go og kom út í apríl en hún hefur fengið frábæra dóma hjá gagnrýnendum. Í gær var tilkynnt að lag Jónsa, Sticks and Stones, kemur til greina fyrir tilnefningu til Óskarsverðlaunanna en lagið er titillag kvikmyndarinnar How to Train Your Dragon.



Japan stendur upp úr

„Viðtökurnar voru eiginlega ótrúlega góðar. Það vissu samt ekki margir af mér til að byrja með, enda er ég í fyrsta skipti að koma fram undir nafninu Jónsi. Það þekkja miklu fleiri Sigur Rós, svo ég þurfti að fara í aðeins fleiri viðtöl og kynna mig," segir söngvarinn.

Ferðalagið hefur staðið síðan í febrúar en spilað var á 100 tónleikum í flestum heimsálfum. Jónsi segir að það hafi verið gaman að spila alls staðar, en Japan hafi staðið upp úr og uppselt hafi verið á alla tónleikana. „Japanar eru svo kurteisir. Við spiluðum fyrir þá á einhverri hátíð og eftir fyrsta lagið var dauðaþögn. Þeir vissu ekki hvort það ætti að klappa eða ekki, eða hvort það væri yfirhöfuð kurteisi."



Fann píanóleikarann í karókí

Jónsi þurfti að setja saman hljómsveit fyrir ferðalagið með stuttum fyrirvara, en hann segir það hafa gengið vonum framar. „Ég vissi af Úlfi Hanssyni bassaleikara og mig langaði að fá hann með mér. Ég fann svo píanóleikarann minn á barnum, en ég gaf mig á tal við hann eftir að við tókum sama lagið í karókí," segir Jónsi, en lagið umrædda var Africa með Toto og píanóleikarinn Ólafur Björn Ólafsson. Þorvaldur Þór Þorvaldsson trommuleikari komu svo inn á síðustu stundu.

Kærasti Jónsa, Alex Somers, kemur líka við sögu í hljómsveitinni en hann hjálpaði til við útsetningu Go og spilaði með bandinu á ferðalaginu. Hvernig er að hafa kærastann stöðugt með þér? „Það er bara frábært, enda gerum við allt saman og erum bestu vinir. Það kemur fyrir að við verðum þreyttir hvor á öðrum en það er bara eins og það er."



Latur að eðlisfari

Hljómsveitin lagði af stað í ferðalagið í febrúar. „Við fengum ekki marga daga til að æfa okkur áður en lagt var af stað. En þeir voru alveg rosalega duglegir, sem var frekar fínt fyrir mig því ég er ótrúlega latur að eðlisfari og nenni sjaldan að æfa mikið," segir Jónsi.

Ferðalögin tóku oft langan tíma og flakkað var á milli heimsálfa og tímabelta. „Þetta tekur svolítið á. Maður er á endalausum ferðalögum og getur hvergi skotið rótum. Það eru ákveðin viðbrigði að ferðast með ókunnugu fólki í eitt ár, en það voru allir þolinmóðir og við sýndum hver öðrum skilning. En mér finnst rosalega gott að vera kominn heim."



Sigur Rós í sautján ár

Jónsi spilaði síðast hér á landi með Sigur Rós fyrir tveimur árum en 29. desember ætlar hann að ljúka tónleikaferðalaginu með tónleikum í Laugardalshöllinni. „Ég er orðinn mjög spenntur að spila hér aftur. Það er gaman að koma fram alls staðar, en það er langmesta pressan að spila fyrir framan vini mína og fjölskyldu," segir Jónsi, og bætir við að fjölskyldan verði í fremstu röð í Höllinni. „Þau koma og styðja son sinn," segir hann og hlær.

Jónsi gefur ekki mikið fyrir þá rándýru tónleika sem tónlistarmenn á Íslandi bjóða landanum upp á nú fyrir jólin. „Ég skil ekkert í þeim Íslendingum sem kaupa sig inn á þessa jólatónleika þar sem miðinn kostar hátt upp í tíu þúsund krónur. Það á frekar að koma á alvöru tónleika þar sem þú færð miklu meira fyrir peninginn," segir Jónsi og hlær, en hann lofar frábærum tónleikum.

Spurður um plön fyrir nýja árið, segir Jónsi að hann ætli að sameinast strákunum í Sigur Rós en bandið mun fagna sautján ára afmæli sínu 4. janúar. „Við erum ekki búnir að gera neitt saman í tvö ár, svo við komum alveg ferskir til leiks," segir Jónsi, en hann lofar einhverju glænýju frá bandinu.

kristjana@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×