Innlent

Herjólfur fer færri ferðir

Hefðu allar áætlanir staðist gætu ferðir til Landeyjahafnar hafa orðið tvöfalt fleiri en farnar voru til Þorlákshafnar.
Hefðu allar áætlanir staðist gætu ferðir til Landeyjahafnar hafa orðið tvöfalt fleiri en farnar voru til Þorlákshafnar.

Fjórðungur ferða Herjólfs hefur verið farinn til Þorlákshafnar á því tímabili sem Landeyjahöfn hefur verið opin. Hefði áætlun haldist um Landeyjahöfn hefði ferjan náð mun fleiri ferðum en siglingaleiðin til Þorlákshafnar er mun lengri en til Landeyja­hafnar. Þær ferðir sem voru farnar til Þorlákshafnar voru 108 frá júlí og út nóvember.

Hefði Landeyjahöfn haldist opin og ferjan verið á áætlun hefði verið hægt að fjölga ferðunum um 216 á móti þessum 108 ferðum til Þorlákshafnar.- sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×