Innlent

Stal góssi fyrir tvær milljónir

Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir að brjótast inn í þrjú íbúðarhús og stela þar munum að verðmæti um tvær milljónir króna. Hann er nú í gæsluvarðhaldi á Litla-Hrauni. Maðurinn sóttist einkum eftir flatskjám, tölvubúnaði og myndavélum auk skartgripa.

Á einum staðnum stal hann að auki 980 evrum, 250 Bandaríkjadölum og 260 sterlingspundum. Á öðrum stað greip hann svo með sér kuldagalla frá 66°Norður, auk annars þýfis.- jss








Fleiri fréttir

Sjá meira


×