Innlent

Jólalegasta húsið í Sandgerði verðlaunað

Stafnesvegur 3 í Sandgerði er Jólahús bæjarins í ár
Stafnesvegur 3 í Sandgerði er Jólahús bæjarins í ár
Umhverfisráð Sandgerðisbæjar veitti viðurkenningu fyrir Jólahús Sandgerðisbæjar 2010 í gær 16. desember. Í ár var það Stafnesvegur 3 sem hlaut viðurkenninguna en er það hús áberandi vel skreytt og hefur fallega heildarmynd.

Eigandi hússins er Grétar Pálsson. Auk viðurkenningar fékk Grétar gjafabréf frá HS Orku og HS Veitum að verðmæti 20.000 krónur.

Sigrún Árnadóttir, bæjarstjóri Sandgerðisbæjar, afhenti viðurkenninguna en Guðrún Jóna Jónsdóttir, barnabarn Grétars, tók við viðurkenningunni fyrir hans hönd að því er fram kemur á fréttavefnum http://www.245.is/.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×