Innlent

Þingfrestun líklega á morgun

Stefnt er að því að þingið starfi í dag og á morgun en fari svo í jólaleyfi.

Samkvæmt starfsáætlun átti síðasti starfsdagur á haustþingi að vera í dag. Þingmenn sem rætt var við í gær reiknuðu ekki með að dagurinn dygði til að ljúka þeim málum sem þarf að ljúka fyrir áramót.

Í áætlun er gert ráð fyrir að þing komi aftur saman 17. janúar.

Fyrir ári var síðasti þingfundur fyrir jól á Þorláksmessu og fundað var í þrjá daga milli hátíða. Þingið kom svo saman áttunda dag nýs árs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×