Innlent

Stálu jólapökkum og dýrmætum skartgripum

Íbúar í raðhúsalengju í Hafnarfirði eru miður sín eftir að innbrotsþjófar létu þar greipar sópa í tveimur íbúðum og tóku með sér innpakkaðar jólagjafir, dýrmæta skartgripi og tölvur. Tjónið er metið á hundruð þúsunda króna.

Innbrotin áttu sér stað milli 9 og 12 að morgni fyrr í vikunni í Þrastarási í Hafnarfirði þegar íbúar voru farnir til vinnu. Á mettíma tókst innbrotsþjófum að komast inn í báðar íbúðirnar með því að brjóta upp harðlæsta svefnherbergisglugga með kúbeini.

Kristinn Arnar Jóhannesson, íbúi í Þrastarási, segir að þjófarnir hafa tekið skartgripi, þar á meðal fyrsta hringinn sem hann gaf eiginkonu sinni. Auk þess tóku þjófarnir dýran rafmagnsbúnað og fartölvu.

„Við vorum með jólagjafir í pokum og það var búið að sturta úr þeim á gólfið. Við vitum ekki nákvæmlega hvað var tekið. Við eigum eftir að kanna það," segir Kristinn og bætir við að þjófarnir hafi vitað nákvæmlega hvað þeir voru að gera.

Birgir Sigurjónsson, íbúi í Þrastarási.
Þegar þeir höfðu tekið allt sem talist gat dýrmætt létu þeir til skarar skríða í íbúðinni við hliðina á og tóku annað eins. Þar leituðu þeir í öllum skúffum og skápum, skildu allt eftir í rúst en eldri hljómflutningstæki, sjónvarp og óekta skartgripi létu þeir eiga sig, að sögn Birgis Sigurjónssonar, íbúa í Þrastarási.

Íbúar beggja húsanna voru ekki með þjófavarnarkerfi en voru þó tryggðir. Tjónið er metið á hundruð þúsunda og er rannsókn málsins í fullum gangi hjá lögreglu. Að undanförnu hefur verið brotist inn í ellefu heimahús í Hafnarfirði og Garðabæ og hafa flest innbrotin átt sér stað að degi til.

„Okkur líður ekki hreint vel vegna þess að maður fyllist óöryggi," segir Birgir. Um mjög grófa árás á einkalíf fjölskyldunnar hafi verið að ræða.

Kristinn segir eiginkonuna hrædda. „Maður er mest svekktur út í sjálfan sig að hafa látið þetta gerast hjá sér. Þetta gat ekki gerst hjá mér. Af hverju gerðist þetta hjá mér?"




Fleiri fréttir

Sjá meira


×