Innlent

Viðbúnaður vegna einkaþotu á Keflavíkurflugvelli

Tveggja hreyfla einkaþota með sex manns um borð lenti á Keflavíkurflugvelli laust upp úr miðnætti eftir að bilun varð í örðum hreyfli hennar með þeim afleiðingum að það drapst á honum.

Vélin var á leið frá Bretlandi til Bandaríkjanna og var Keflavíkurflugvöllur næsti flugvöllur þegar bilunin varð.

Aðgerðarstjórn var virkjuð á vellinum og sjúkrabílar sendir á vettvang auk slökkviliðsins, en lendingin gekk að óskum og sakaði engan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×