Innlent

Þök fjúka á Suðurnesjum

Óviðrið hefur ollið þó nokkru tjóni.
Óviðrið hefur ollið þó nokkru tjóni.

Vonskuveður er á Suðurnesjum líkt og út um allt land. Vísir fékk rétt í þessu sendar myndir þar sem sést hvernig vindurinn er byrjaður að rífa upp þök á húsum.

Fleiri hrikalegar myndir sem náðust af þaki rifna upp verða sýndar í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Björgunarsveitir á Suðurnesjum eru nú í óðaönn að tryggja lausa muni og koma í veg fyrir frekara tjón.

Alls kyns hlutir fljúga um göturnar og brjóta bíla og bramla. Er fólk hvatt til að halda sig innandyra.
 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×