Innlent

Skerða ráðstöfunartekjur heimilanna

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í pontu.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, í pontu. Mynd/GVA
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins mótmæla þeim álögum sem ríkisstjórnin leggur á almenning í landinu og segja þær skerða ráðstöfunartekjur heimilanna. Umræður um ráðstafanir í ríkisfjármálum hófust á Alþingi á fjórða tímanum í dag.

„Skattahækkanirnar draga mátt úr heimilum og fyrirtækjum og nú er svo komið að skattstofnar eru farnir að dragast saman vegna mikillar skattbyrði. Brýnt er að snúa þessari þróun við til að hægt sé að auka umsvif, kaupmátt og lífskjör í landinu," segir í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×