Innlent

Gamalt varðskip losnaði frá bryggju og strandaði

Fyrrum varðskipið Þór losnaði frá bryggju í Gufunesi síðdegis og strandaði í fjöru skammt frá. „Málið er í biðstöðu og verið er að fara yfir næstu skref. Ákvörðun verður tekin í samráði við eigendur skipsins," segir Ólöf Snæhólm, upplýsingafulltrúi Landsbjargar. Ekki er talin hætta á ferðum. Ólöf segir að hugsanlega verði hægt að koma skipinu á flot án aðkomu björgunarsveitarmanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×