Innlent

Gunnar í Krossinum: Herferðin er frá hópi í nýju trúfélagi

Gunnar Þorsteinsson
Gunnar Þorsteinsson
Gunnar Þorsteinsson í Krossinum birtir yfirlýsingu á heimasíðu Krossins nú í kvöld. Þar segir hann að hann sé bugaður maður og ásakanir um að hann hafi brotið gegn fimm konum séu tilhæfulausar. Hann segir einnig að eftir að hann og Jónina giftu sig hafi þau fengið hótanir.

Á meðal þeirra sem saka Gunnar um kynferðislega áreitni eru tvær fyrrverandi mágkonur hans

„Ásakanirnar eru fyrst og fremst frá fyrrverandi mágkonum mínum sem tóku afar óstinnt upp mitt nýja hjónaband og hafa verið með rógstungur í okkar garð. Þetta er fjórða bylgja sögusagna sem við höfum glímt við, en nú er gengið svo langt að ég er orðlaus," segir Gunnar í yfirlýsingunni.

„Því miður er mér kunnugt um að hópur af fólki hefur um skeið unnið að því að leita að ávirðingum á mig með logandi ljósi. Menn hafa velt hverjum steini og uppskeran er komin í hús. Hópur sem tilheyrir nýju trúfélagi í Reykjavík hefur náð góðum árangri með ófrægingarherferð þessari. Þú spyrð hvort þetta geti verið, já, því miður, ég hef staðfestingu á því."

Hann segist ætla að hreinsa mannorð sitt en verði að treysta á dómskerfið og það ætli hann að gera. „Ég taldi að ég þyrfti ekki að reka mín mál frammi fyrir mannlegu dómþingi en þetta blasir við."

Það segir hann að eftir að hann og Jónína Ben hafi gengið í hjónaband hafi þau fengið hótanir um að líf þeirra muni ekki verða farsælt. Hann segist viss um að ekki sé hægt að festa á mann sakir sem eru úr lausu lofti gripnar. „Ég treysti því og bið ykkur um að berjast með mér þessari baráttu," segir Gunnar.

Hann biður svo menn um að gefa sér svigrúm og láta ekki óvandaða menn sundra og skemma eða stela, slátra og eyða. Hann endar svo yfirlýsinguna á orðunum:

„Guð blessi þig."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×