Fótbolti

Velur Gregory van der Wiel Bayern Munchen?

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Gregory van der Wiel í leiknum gegn Brasilíu á HM.
Gregory van der Wiel í leiknum gegn Brasilíu á HM. AFP
Bayern Munchen ætlar að reyna að fá hægri bakvörðinn Gregory van der Wiel til sín frá Ajax. Hann myndi kosta félagið um 14 milljónir evra.

Van der Wiel hefur staðið sig einkar vel á HM með Hollandi og hefur verið orðaður við félögum á borð við Real Madrid, Barcelona, Juventus, Inter, Manchester City og Arsenal.

Umboðsmaður Hollendingsins ýtti undir áhuga bayern Munchen en hann hefur leikið lykilhlutverk í liði Ajax þar sem hann ólst upp.

Í De Telegraaf í dag segir að hinn 22 ára gamli bakvörður vilji fara til stærra félags.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×