Fótbolti

Ballack fær landsliðstreyjuna sína aftur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Þýska ungstirnið Thomas Muller sló í gegn á HM með landsliði Þýskalands. Hann skellti sér þá í treyju Michael Ballack, númer 13, en Ballack gat ekki spilað á HM vegna meiðsla.

Þó svo Muller sé orðin stjarna í liðinu hefur hann ekki í hyggju að rífa númerið af Ballack strax.

"Þegar Ballack kemur aftur mun hann fá númerið sitt aftur. Hann má svo sannarlega fá það mín vegna," sagði Muller.

"Þetta er að sjálfsögðu mikilvægt númer út af Gerd Muller."

Ballack fer þó ekki í treyjuna strax því hann er ekki kominn í form og mun ekki spila fyrstu leiki þýska landsliðsins í undankeppni EM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×