Handbolti

Heimir grillar ofan í áhorfendur í Krikanum í kvöld

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Heimir og aðstoðarmenn hans verða á grillinu í kvöld.
Heimir og aðstoðarmenn hans verða á grillinu í kvöld. Mynd/Vilhelm

Það verður mikið um dýrðir í Kaplakrika í kvöld þegar nágrannaliðin FH og Haukar mætast í N1-deild karla í handbolta.

FH-ingar verða með dagskrá frá 18.30 þar sem meðal annars verður boðið upp á lifandi tónlist.

Mesta athygli vekur þó að Heimir Guðjónsson, þjálfari knattspyrnuliðs FH, mun standa vaktina á grillinu í Krikanum og grilla hamborgara ofan í svanga áhorfendur.

Við hlið hans með brauðin og sósurnar verða aðstoðarþjálfarar FH-liðsins.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×