Golf

Nike ætlar að standa með Tiger

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tiger getur loks brosað að einhverju.
Tiger getur loks brosað að einhverju.

Íþróttavörurisinn Nike hefur ákveðið að standa við bakið á Tiger Woods þrátt fyrir alla framhjáhaldsskandalana.

Forseti Nike, Charlie Denson, vill aftur á móti ekki sjá Tiger aftur á golfvellinum fyrr en hann sé búinn að taka til heima hjá sér.

Kreppan hefur komið illa við söluna á golfvörum Nike og fyrirtækið sér væntanlega ekki fram á að halda dampi þar nema með Tiger innanborðs.

Tvö fyrirtæki, AT&T og Accenture, hafa þegar slitið samstarfssamningum við Tiger en Gillette og úraframleiðandinn Tag Heuer hafa dregið úr auglýsingum með kylfingnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×