Innlent

Brúðarmeyjar í íslenskum kjól

Brynjar Ingólfsson
Brynjar Ingólfsson
Tískufyrirtækið Emami hefur boðið leikkonunni Anítu Briem að hanna kjóla frítt á sex brúðarmeyjar hennar þegar hún gengur í það heilaga með unnusta sínum Dean Paraskevopoulos á grísku eyjunni Santorini í sumar. Aníta hefur þekkst boðið.

„Það er náttúrulega frábært að fá að gera þetta með henni Anítu," segir Brynjar Ingólfsson, framkvæmdastjóri Emami. Fyrirtækið mun gera hinn vinsæla Limit­less-kjól á brúðarmeyjarnar. Þetta er í fyrsta sinn sem Emami býr til kjóla á brúðarmeyjar en áhugi er á áframhaldandi gerð brúðarmeyjarkjóla.- mmf/sjá Allt




Fleiri fréttir

Sjá meira


×