Fótbolti

Brasilíumenn í vandræðum með Norður-Kóreu en unnu 2-1

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Maicon fagnar marki sínu með félögum sínum í brasilíska landsliðinu.
Maicon fagnar marki sínu með félögum sínum í brasilíska landsliðinu. Mynd/AP
Brasilíumenn unnu 2-1 sigur á Norður-Kóreu í fyrsta leik sínum á HM í Suður-Afríku. Norður-Kóreumenn komu mörgum á óvart með góðri frammistöðu og það er ljóst á leiknum í kvöld að Norður-Kórea er sýnd veiði en ekki gefin í dauðariðlinum.

Það tók Brasilíumenn 55 mínútur að finna leiðinni í markið hjá skipulögðu liði Norður-Kóreubúa og það þurfti algjöra snilld eða kannski bara algjöran grís hjá bakverðinum Maicon til þess að koma Brasilíu á bragðið í keppninni.

Norður-Kóreumenn stríddu brasilíska liðinu mikið í fyrri hálfleik með skipulögðum varnarleik og inn á milli einni og einni skemmtilegri skyndisókn. Brasilíumenn fundu ekki taktinn og fengu fá færi. Brasilíumenn voru með betri tök á leiknum í upphafi seinni hálfleiks og komust í 1-0 eftir aðeins tíu mínútna leik í honum.

Bakvörðurinn Maicon tók þá til sinna ráða á 55. mínútu þegar hann tók enn eitt hlaupið sitt upp allan hægri kantinn og fékk boltann síðan frá Elano. Þegar Maicon var kominn upp að endamörkum horfði hann út í teiginn og virtist ætla að gefa boltann fyrir en skotið/sendingin hans fór hinsvegar á nærstöngin og framhjá Ri Myong-guk sem var óviðbúinn í markinu.

Markið var algjör augnakonfekt og enn eitt dæmi um eftirminnilegt mark frá brailískum bakverðir í úrslitakeppni HM en það verður örugglega mikið rætt um það hvort að hann hafi ætlað að skora eða gefa fyrir.

Brasilía komst síðan í 2-0 á 72. mínútu þegar Elano skoraði á laglegan hátt eftir að hafa fengið stórkostlega sendingu frá Robinho þvert í gegnum vörnina. Þetta var það síðasta sem Elano gerði í leiknum því honum var skipt strax útaf.

Norður-Kóreumenn voru ekkert á því að gefast upp og Ji Yun-nam minnkaði muninn á 88. mínútu með laglegu marki eftir að hafa platað brasilísku vörnina. Markið var hálfgerður sigur fyrir lið Norður-Kóreu en sigur Brasilíu var engu að síður nokkuð öruggur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×