Golf

Watson kemur ekki aftur á Opna breska

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Watson kveður hér St. Andrews í síðasta skiptið.
Watson kveður hér St. Andrews í síðasta skiptið. AP/Getty

Hinn sextugi Bandaríkjamaður, Tom Watson, mun aldrei aftur taka þátt á Opna breska meistaramótinu í golfi.

Watson lék annan daginn á 75 höggum og komst ekki í gegnum niðurskurðinn að þessu sinni.

Watson vann mótið fimm sinnum á sínum ferli en aldrei tókst honum að vinna á St. Andrews en völlurinn er oft kallaður Gamla konan.

"Hún var nakin á föstudag en setti upp boxhanskana og lamdi okkur af alefli," sagði sá gamli.

Watson var ekki fjarri því að vinna þetta mót í fyrra. Þá endaði hann í umspili gegn Stewart Cink en varð að láta í minni pokann eftir að hafa orðið úrvinda af þreytu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×