Erlent

Hugh Hefner ekki lengi að jafna sig - tvíburar fluttir inn

Hugh Hefner og Crystal Harris. 60 ára aldursmunur er á þeim.
Hugh Hefner og Crystal Harris. 60 ára aldursmunur er á þeim. Mynd/AFP
Svo virðist sem að Hugh Hefner, stofnandi Playboy tímaritsins, ætli ekki að eyða miklum tíma í að sleikja sárin eftir að fyrrverandi unnusta hans hætti við að giftast honum því Hefner bauð tvíburum að flytja inn á Playboy-setrið í hennar stað. Samkvæmt erlendum fjölmiðlum eru systurnar Karissa og Kristina Shannon nú þegar fluttar inn.

Til stóð að Hefner myndi ganga að eiga Crystal Harris um helgina og von var á rúmlega 300 brúðkaupsgestum á Playboy-setrið. Harris hætti hins vegar við á síðustu stundu og því var brúðkaupinu aflýst. 60 ára aldursmunur er á Harris og Hefner.

Tvíburasysturnar eru ekki ókunnar Playboy-setrinu en myndir af þeim hafa auk þess birst í tímaritinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×