Erlent

Ófreskjan frá Kiel játar á sig fimm morð

Mynd/AFP
Ófreskjan frá Kiel, raðmorðinginn Hans-Jürgen S., sem var handtekinn í byrjun apríl njósnaði um ungar stúlkur í bíl sínum, beið eftir rétta tækifærinu og myrti þær síðan. Tæp 30 ár eru frá því Hans varð síðasta fórnarlambi sínu að bana. DNA sýni kom lögreglunni á sporið.

Talið er að Hans hafi myrt fleiri en fimm stúlkur á 7. áratug síðustu aldar. Fórnarlömbin voru á aldrinum 13-22 ára. Hans-Jürgen er 64 ára gamall og bjó í 140 fermetra blokkaríbúð ásamt móður sinni. Hann var árið 1993 handtekinn fyrir að beita vændiskonu grófu ofbeldi. Þá vissi lögreglan ekki að maðurinn væri raðmorðingi.

Hans-Jürgen hefur játað á sig fimm morð en lögreglan telur hann hafa fleiri morð á samviskunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×