Innlent

Skútur losnuðu frá í óveðri - skemmdu millibryggjur illa

Höfnin á Akureyri
Höfnin á Akureyri mynd úr safni
Súlur - björgunarsveitin á Akureyri var kölluð út um fjögur leytið í dag þegar að skútur, sem liggja við flotbryggjuna við menningarhúsið Hof, losnuðu og skemmdu millibryggjur illa. Mikið hefur bætt í vind á Akureyri undanfarna klukkustund og eru nú 10 björgunarsveitamenn,  hafnarstarfsmenn og eigendur skútanna að reyna að bjarga málum. Búið er að ná einni skútu frá og verið er að reyna verja hinar þrjár eða ná þeim frá höfninni en aðstæður eru nokkuð erfiðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×