Innlent

Sigurjón Sighvatsson vill kvikmynda bók Yrsu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Yrsa Sigurðardóttir gaf út skáldsöguna Ég man þig fyrir síðustu jól.
Yrsa Sigurðardóttir gaf út skáldsöguna Ég man þig fyrir síðustu jól.
Sigurjón Sighvatsson hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn á metsölubók Yrsu Sigurðardóttur, Ég man þig, sem var ein mest selda bók liðins árs og situr nú í efsta sæti Bóksölulistans.

Sigurjón Sighvatsson segir í tilkynningu að Ég man þig skeri sig á margan hátt frá öðrum sakamálasögum um þessar mundir. „Um er að ræða svokallaðan „yfirnáttúrulegan trylli, en ekki „hefðbundinn trylli" þar sem persóna lögreglumannanna er í forgrunni. Sagan sækir meira í íslenska sagnahefð um yfirnáttúrulega atburði en hinn klassíska ameríska noir trylli, sem nú er orðinn að alþjóðlegu fyrirbæri. Umgjörð sögunnar, mikilfengleg íslensk náttúra gerir sérstöðu bókarinnar ennþá meiri og því spennandi efni í kvikmynd sem í senn er alíslensk en hefur um leið alþjóðlega skírskotun," segir Sigurjón.

Ég man þig er sjötta glæpa- og spennusaga Yrsu Sigurðardóttur og segir frá ungu fólki sem er að gera upp hús á Hesteyri í Jökulfjörðum um miðjan vetur en það fer að gruna að þau séu ekki einu gestirnir í þessu eyðiþorpi. Á sama tíma dregst ungur læknir á Ísafirði inn í rannsókn á sjálfsmorði eldri konu. Hún virðist hafa verið hugfangin af syni hans sem hvarf fyrir þremur árum - og fannst aldrei.

Sigurjón Sighvatsson hefur framleitt yfir fjörutíu kvikmyndir og sjónvarpsseríur, aðallega sem sjálfstæður framleiðandi í Hollywood. Kvikmynd hans Wild at Heart í leikstjórn David Lynch hlaut Gullpálmann í Cannes á sínum tíma en meðal leikara sem hann hefur unnið með eru Harrison Ford, Jeff Bridges, Tim Robbins, Nicholas Cage, Natalie Portman og Toby Maguire. Sigurjón er nú að ljúka lokafrágangi kvikmyndarinnar The Killer Elite með Robert DeNiro, Jason Statham og Clive Owen í aðalhlutverkum og mun hún verða tilbúin fyrir haustið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×