Innlent

Strandveiðibátar og fiskiskip streyma á miðin

Strandveiðibátar og önnur fiskiskip streyma á miðin og tilkynntu 300 bátar og skip brottför á  aðeins þremur klukkustundum í nótt.

Klukkan sex í morgun voru 600 skip og bátar komin á sjó og fjölgaði ört. Smábátar gátu ekki róið í gær vegna veðurs og stóru skipin máttu ekki leggja úr höfn fyrr en eftir hádegi, í kjölfar Sjómannnadagsins, og landað var úr mörgum þeirra í gær. Nú viðrar hinsvegar vel, nánast á öllum miðum umhverfis landið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×