Innlent

Búast við éljum norðan- og austantil á landinu

Búast má við stöku éljum norðan- og austantil á landinu í dag, samkvæmt spá Veðurstofunnar og verður vindátt áfram norðlæg.

Frost var á hálendinu í nótt, mest fimm stiga frost norðan Hofsjökuls. Veðurstofan spáir frosti næstu nótt líka, jafnvel á höfuðborgarsvæðinu. 

Kuldakaflinn hefur verulega hægt á öllum gróanda og reikna bændur með að sláttur hefjist víða viku til tíu dögum seinna í sumar en í fyrrasumar og að jafnvel verði ekkert úr þriðja slætti, sem tíðkast hefur undanfarin ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×