Telur ólíklegt að bankinn hafi brotið lög 7. júní 2011 06:00 Fjármálaráðherra frétti fyrst af aðgerðum Landsbankans í fjölmiðlum og segir það fullkomlega eðlilegt. fréttablaðið/gva
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir nýja aðgerðaráætlun Landsbankans vera það veigamikla að nauðsynlegt sé að skoða hana til hlítar. Rætt var um málið á fundi fjárlaganefndar í gærmorgun og er það í fyrsta sinn sem þingið tekur það fyrir síðan aðgerðir bankans voru kynntar. „Við byrjum á því að afla upplýsinga og skoða þessar aðgerðir, sem er fullkomlega eðlilegt,“ segir Steingrímur. „Athuga þarf sér í lagi hvort þessi skuldaniðurfelling sé innan þess ramma sem búið er að setja fjármálastofnunum.“ Steingrímur segir að nú þegar sé búið að veita mjög víðtækar undanþágur á skuldaniðurfellingar fyrir heimilin og frekari eftirgjöf á skuldum gæti þýtt skattlagningu við venjulegar aðstæður. „Það var búið að búa til mjög rúmar undanþágureglur vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem eru uppi. Við höfum takmarkaða fjármuni í greiðslur vaxtabóta,“ segir hann. „En ekkert hefur enn verið ákveðið og það er einungis verið að afla upplýsinga.“ Hann telur afar ólíklegt að bankinn sé með einum eða öðrum hætti að brjóta lög með þessum breytingum. Steingrímur frétti fyrst af breyttum aðgerðum Landsbankans í fjölmiðlum og segir hann það fullkomlega eðlilegt. „Ég sem fjármálaráðherra hef engin afskipti af starfsemi bankans. Hann starfar bara á ábyrgð sinnar stjórnar,“ segir Steingrímur.- sv
Mest lesið Trump bakkar frá samkomulagi um kappræður Erlent Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Innlent Leiðindaveður um allt land vegna djúprar lægðar Veður Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Innlent Hvetja vestræna borgara til að koma sér frá Líbanon Erlent Kajakræðarar í hættu hífðir upp Innlent Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Önnur djúp lægð á leiðinni Veður Laus úr haldi eftir hnífsstungu á Akureyri Innlent Fleiri fréttir Laus úr haldi eftir hnífsstungu á Akureyri Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Kajakræðarar í hættu hífðir upp Fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga á Litla-Hrauni Gekk berserksgang og olli tjóni á þremur bifreiðum Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Bíll alelda á Hellisheiði Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Bjóða óperumuni fala á menningarnótt í von um framhaldslíf Ber á því að ekið sé á sauðfé á Vesturlandi Sjálfstæðisflokkurinn í „meiriháttar vandræðum“ Sóttu veikan ferðamann í éljagangi og fimm metra öldum Hnífstunguárás á Akureyri og vandræði hjá Sjálfstæðisflokknum Fimm í fangaklefa þegar mest lét í Eyjum Ekki talinn í lífshættu eftir hnífsstungu á Akureyri í nótt Mátti litlu muna að eldur í gámi bærist í hús Íslendingar öllu veðri vanir Ganga frá Hallgrímskirkju og spila hljóð frá sprengjuregni Kjósendur VG leiti nú til Sósíalista Bílarnir ónýtir og tveir fluttir á sjúkrahús Sló bíl með golfkylfu eftir átök milli fíkniefnasala og kaupanda Íslendingur vann tæpar 37 milljónir í Eurojackpot „Það er í raun og veru allur bransinn sem er í hættu“ Nauðgunarbrandari Patriks féll í grýttan jarðveg Sósíalistar sem ætla á þing og þjóðhátíð í beinni „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Vara við væntanlegum fjölda netsvika um helgina Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Meiri umferð um Vesturlandsveg en Suðurlandsveg Sjá meira