Innlent

Ferðum um göngin fækkar um 11%

Hvalfjarðargöngin Talið er víst að umferð um göngin á árinu verði minni en í fyrra.fréttablaðið/pjetur
Hvalfjarðargöngin Talið er víst að umferð um göngin á árinu verði minni en í fyrra.fréttablaðið/pjetur
Umferð um Hvalfjarðargöng í maí síðastliðnum dróst saman um ellefu prósent miðað við sama mánuð í fyrra.

Þegar horft er til lengri tíma er mikil samsvörun í tölum Spalar fyrir Hvalfjarðargöng og Vegagerðarinnar fyrir þjóðvegina. Umferð í göngunum dróst saman um 8,15 prósent fyrstu fimm mánuði þessa árs en samdrátturinn á landsvísu, samkvæmt tölum Vegagerðarinnar, var 8,8 prósent á sama tíma. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Speli.

Talið er fullvíst að umferðin í göngunum verði áfram minni í ár en í fyrra samkvæmt spám Vegagerðarinnar.- sv




Fleiri fréttir

Sjá meira


×