Formúla 1

Vettel með besta tíma sem hefur náðst á Katalóníu brautinni á árinu

Sebastian Vettel á þjónustusvæði Red Bull á Katalóníu brautinni á Spáni í dag.
Sebastian Vettel á þjónustusvæði Red Bull á Katalóníu brautinni á Spáni í dag. Mynd: Getty Images/Paul Gilham
Sebastian Vettel hjá Red Bull náði besta aksturstímanum á öðrum degi æfinga Formúlu 1 liða á Katalóníu brautinni á Spáni í dag.

Tími Vettels var sá besti sem hefur náðst á æfingum á Katalóníu brautinni í ár, samkvæmt frétt á autosport.com.

Mark Webber á Red Bull var með besta tíma í gær og Red Bull liðið virðist því í góðum gír að hefja titilvörnina, en Vettel varð meistari ökumanna í fyrra og Red Bull liðið meistari bílasmiða.

Sebastian Buemi á Torro Rosso var næst fljótastur í dag og var 0.531 sekúndu á eftir Vettel, en Buemi ók flesta hringi um brautina eða 120.

Tímarnir í dag og eknir hringir

 1.  Sebastian Vettel   Red Bull-Renault      1m21.865s   112

 2.  Sebastien Buemi    Toro Rosso-Ferrari    1m22.396s  + 0.531s  120

 3.  Vitaly Petrov      Renault               1m22.670s  + 0.805s  116

 4.  Lewis Hamilton     McLaren-Mercedes      1m22.888s  + 1.023s  57

 5.  Felipe Massa       Ferrari               1m23.324s  + 1.459s  101

 6.  Paul di Resta      Force India-Mercedes  1m24.334s  + 2.469s  118

 7.  Kamui Kobayashi    Sauber-Ferrari        1m24.436s  + 2.571s  107

 8.  Nico Rosberg       Mercedes              1m25.807s  + 3.942s  100

 9.  Jarno Trulli       Lotus-Renault         1m26.090s  + 4.225s  98

10.  Pastor Maldonado   Williams-Cosworth     1m26.989s  + 5.124s  29

11.  Jerome D'Ambrosio  Virgin-Cosworth       1m28.982s  + 7.117s  64






Fleiri fréttir

Sjá meira


×