Innlent

Nítján starfsmenn handteknir í húsleitunum

Nítján starfsmenn Byko, Húsasmiðjunnar og Úlfsins voru handteknir og færðir til yfirheyrslu í samhliða húsleit ríkislögreglustjóra og Samkeppniseftirlitsins í dag. Lagt var hald á gögn og muni í þágu rannsóknarinnar.

Allir starfsmennirnir nítján eru nú frjálsir ferða sinna og yfirheyrslum yfir þeim lokið. Til rannsóknar eru ætluð brot á banni samkeppnislaga við samráði keppninauta um meðal annars verð, gerð tilboða og skiptingu markaða.

„Samkvæmt 41. gr. a samkeppnislaga nr. 44/2005 varðar það starfsmenn fyrirtækja sektum eða fangelsi allt að sex árum ef þeir framkvæma, hvetja til eða láta framkvæma samráð milli keppinauta, m.a. um verð," segir í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra.

Rannsókn ríkislögreglustjóra beindist að ætluðum brotum starfsmanna fyrirtækjanna og grundvallast á kæru Samkeppniseftirlitsins, en þau brot sæta rannsóknlögreglu að undangenginni kæru stofnunarinnar.

„Samhliða rannsókn lögreglu á ætluðum brotum starfsmanna fyrirtækjanna hefur Samkeppniseftirlitið til rannsóknar hugsanleg brot hlutaðeigandi fyrirtækja á banni við ólögmætu samráði, en slík brot varða fyrirtæki m.a. stjórnvaldssektum," segir á vef ríkislögreglustjóra.

Við aðgerðina naut ríkislögreglustjóri og Samkeppniseftirlitið aðstoðar starfsmanna sérstaks saksóknara, lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og lögreglustjórans á Suðurnesjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×