Innlent

Það á aldrei að skilja hunda eina eftir í bandi

Jóna Th. Viðarsdóttir, formaður Hundaræktarfélags Íslands, segir að aldrei eigi að skilja hund eftir einan í bandi, sama af hvaða tegund hundurinn er.
Jóna Th. Viðarsdóttir, formaður Hundaræktarfélags Íslands, segir að aldrei eigi að skilja hund eftir einan í bandi, sama af hvaða tegund hundurinn er.
Jóna Th. Viðarsdóttir, formaður Hundaræktarfélags Íslands, segir að aldrei eigi að skilja hund eftir einan í bandi, sama af hvaða tegund hundurinn er. Hún segir að sem betur fer komi ekki oft upp mál þar sem hundar bíti ókunnuga.

Á föstudaginn réðst Rottweiler hundur, sem bundinn var við íbúðarhús í Hveragerði, á konu sem hugðist heimsækja fólkið sem þar býr. Hún hlaut sár á úlnlið og hlúði læknir að konunni. Hundurinn var tekinn í vörslu hundafangara og hefur lögreglan á Selfossi málið til skoðunar.

„Þú skilur aldrei eftir hund þar sem hinir og þessir geta komist að honum, ef hann verður fyrir áreiti, þá kemst hann ekki neitt. Og það eina sem hann getur gert er að bíta frá sér ef hann verður óöruggur. Þetta gildir um alla hunda, það skiptir ekki máli af hvaða tegund hann er," Jóna.

Hún segir að Rottweiler hundar þurfi meiri aga heldur en aðrir hundar. „Þetta er ekki kjölturakki, þetta eru hundar af varðhundakyni og þurfa því ákveðna útrás í leik og hreyfingu. Sumir hundar eru af vinnuhundakyni og þurfa því hreyfingu í veiði og þar fram eftir götunum, þetta er misjafnt eftir tegundum.“

Hún segir að sem betur gerist það ekki oft að að hundar bíti fólk. „Þetta er ofboðslega óheppilegt og hlýtur klárlega að vera óviljaverk og hugsunarleysi að skilja hann einan eftir í bandi, án þess að ég hafi kynnt mér málið,“ segir Jóna.

Þegar haft var samband við lögregluna á Selfossi í kvöld gat hún ekki gefið frekari upplýsingar um málið.


Tengdar fréttir

Rottweiler hundur réðst á konu

Rottweiler hundur sem var bundinn við íbúðarhús í Hveragerði réðst á konu á föstudaginn og beit hana í úlnliðinn. Konan var að koma að húsi þar sem hún hugðist heimsækja fólk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×