Innlent

Rottweiler tíkin útötuð í saur: Lögmaður ósáttur

Erla Hlynsdóttir skrifar
Gröfturinn í auganu sést á þessari mynd
Gröfturinn í auganu sést á þessari mynd
Eigandi Rottweiler-tíkar, sem tekin var af heimili sínu í Hveragerði eftir að hún beit konu í byrjun mánaðarins, er afar ósátt við þann aðbúnað sem tíkin var vistuð við hjá dýraeftirliti Selfoss. Hún hefur ráðið sér lögmann til að leita réttar síns og tíkarinnar.

Tíkin fór í skapgerðarmat eftir árásina og í kafla um heilbrigðisskoðun sem gerð var í húsakynnum dýraeftirlitsins segir: „Tíkin er horuð, rif og mjaðmabein eru vel sýnileg. Tíkin var útötuð í saur á annarri hliðinni á búk og læri (með niðurgang). Hún er frekar vöðvarýr á lærum og yfir axlarblöðun. Gröftur er í báðum augum og augnslímhimna rauð. Nuddsár eru ofan á trýni og vörum."

Umhirðu ábótavant

Eins og Vísir greindi frá í gær vill héraðsdýralæknir Suðurlandsumdæmis láta lóga tíkinni þar sem það er álit læknisins að aflífa skuli hunda sem bíta fólk. Konan sem tíkin beit var nágrannakona eigandans og var hún að koma í heimsókn. Tíkin var þá bundin fyrir utan heimili eigandans. Hún réðst snögglega að konunni, beit hana fast í handlegginn og sýna myndir af áverkum að tennur hundsins hafi rist djúpt.

Eftir þetta var tíkin færð í umsjá dýraeftirlits Selfoss að Byggðarhorni. Meðfylgjandi myndir eru teknar þar.

Mynd tekin þar sem tíkin var vistuð eftir að hún var tekin af eiganda sínum
Árni Stefán Árnason er lögmaður eiganda tíkarinnar. Hann segir að lýsing á aðbúnaði sem hundaatferlisráðgjafi og dýralæknir lýsa í skapgerðarmatinu sé óhugguleg. Samkvæmt lýsingunni hafi aðbúnaði og umhirðu dýrsins verið verulega ábótavant. „Það bendir jafnframt til þess að þetta dýr hafi þurft að þola ástæðulausar þjáningar og illa meðferð á meðan það var í vörslu þeirra sem tóku tíkina af eigandanum," segir hann.

Skylt að fara vel með öll dýr

Árni vísar í dýraverndarlög þar sem segir að skylt sé að fara vel með öll dýr, tryggja þeim viðunandi vistarverur og gera allt sem hægt er til að koma í veg fyrir vanlíðan dýranna.

Eigandi tíkarinnar segir að bælið hafi verið blautt og vistarverurnar mjög óvistlegar í alla staði. Hún hefur ráðið sér lögmann
Auk þess telur hann að reglur úr samþykkt um hundahald í Árborg hafi verið brotnar, en hundurinn var vistaður á Selfossi. Í samþykktinni segir að eigandi eða umsjónarmaður hunds skuli halda dýrinu hreinu, sem og vistarverum hundsins. „Daglegar vistarverur skulu vera hreinar, hæfilega hlýjar, bjartar og vel loftræstar," segir í samþykktinni.

Árni segir að dýralæknar úr Garðabæ hafi komið á svæðið til að skoða tíkina og krafist þess að hún yrði flutt þaðan. Hún dvelur nú á dýralæknastöðinni í Garðabæ þar sem meðal annars er hugað að augnsýkingunni.

Árni vinnur einnig fyrir eiganda tíkarinnar til að reyna að fá því hnekkt að hún verði aflífuð, eins og Vísir fjallaði um í gær.


Tengdar fréttir

Dýralæknir vill láta lóga Rottweiler tíkinni

Héraðsdýralæknir Suðurlandsumdæmis vill láta lóga Rottweiler-tík sem réðst á konu í Hveragerði í byrjun mánaðarins. Eigandi tíkarinnar er afar ósátt við þessa niðurstöðu þar sem hundurinn er "ekki hættulegur í daglegri umgengni" samkvæmt skapgerðarmati.

Það á aldrei að skilja hunda eina eftir í bandi

Jóna Th. Viðarsdóttir, formaður Hundaræktarfélags Íslands, segir að aldrei eigi að skilja hund eftir einan í bandi, sama af hvaða tegund hundurinn er. Hún segir að sem betur fer komi ekki oft upp mál þar sem hundar bíti ókunnuga.

Eigandi Rottweiler tíkarinnar: Ég gerði mistök að skilja hana eina eftir í bandi

"Ég gerði mistök að binda hana í band við húsið, ég vissi ekki að ég mætti ekki gera það," segir eigandi Rottweiler tíkur sem réðst á konu í Hveragerði á föstudaginn í síðustu viku. Eigandinn segir að tíkin hafi farið í skapgerðarmat í gær hjá dýralækni og komið rosalega vel út úr því.

Rottweiler hundur réðst á konu

Rottweiler hundur sem var bundinn við íbúðarhús í Hveragerði réðst á konu á föstudaginn og beit hana í úlnliðinn. Konan var að koma að húsi þar sem hún hugðist heimsækja fólk.

Rottweiler hundur enn í haldi lögreglu

Rottweiler hundurinn sem réðst á konu í Hveragerði á föstudaginn í síðustu viku er enn í vörslu lögreglunnar á Selfossi. Ekki hefur verið tekið ákvörðun um hvort hundinum verði lógað en lögreglustjórinn í bænum tekur þá ákvörðun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er rannsókn en í fullum gangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×