Innlent

Ráðherra vill bæta réttarstöðu transfólks

Guðbjartur hefur skipað nefnd til að gera tillögur að úrbótum fyrir transfólk
Guðbjartur hefur skipað nefnd til að gera tillögur að úrbótum fyrir transfólk
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur skipað nefnd til að gera tillögur að úrbótum um réttarstöðu transfólks (transgender) á Íslandi með hliðsjón af áliti umboðsmanns Alþingis og tillögu til þingsályktunar um málefni þeirra sem lögð var fram á síðasta þingi.

Í máli því sem umboðsmaður Alþingis tók til umfjöllunar (mál nr. 4919/2007) varð niðurstaða hans í fyrsta lagi sú að vekja athygli stjórnvalda á nauðsyn þess að lagt verði mat á hvort setja þurfi skýrari og fyllri reglur um rétt einstaklinga sem haldnir eru kynskiptahneigð, eins og það er orðað á vef ráðuneytisins, til að óska eftir breytingu á skráningu nafns og eftir atvikum kyns í Þjóðskrá og þá um skyldur stjórnvalda í því sambandi.

Í öðru lagi taldi umboðsmaður tilefni til að vekja athygli á nauðsyn þess að meta hvort mæla skuli með skýrum hætti fyrir í lögum um þær reglur sem eiga að gilda um möguleika þess fólks sem um ræðir til að gangast undir leiðréttandi kynskiptiaðgerð. Í því fælist einnig að fjalla um málsmeðferð og skyldur stjórnvalda í því sambandi og þau réttaráhrif sem læknisfræðileg greining á kynskiptahneigð og kynskiptiaðgerðin kann að hafa í för með sér fyrir þá einstaklinga sem í hlut eiga.

Lögð var fram tillaga til þingsályktunar um málið á Alþingi í fyrra sem ekki hlaut afgreiðslu en þar var ályktað að fela ríkisstjórninni að skipa nefnd til þess að gera tillögur að úrbótum á stöðu transfólks á Íslandi.

Formaður nefndarinnar sem velferðarráðherra hefur skipað er Laufey Helga Guðmundsdóttir, velferðarráðuneytinu.

Aðrir nefndarmenn eru Skúli Guðmundsson, tilnefndur af innanríkisráðuneytinu, Óttar Guðmundsson, tilnefndur af landlæknisembættinu, Margrét Steinarsdóttir, tilnefnd af Mannréttindaskrifstofu Íslands, og Anna K. Kristjánsdóttir, tilnefnd af Trans Ísland.

Nefndinni er falið að skila tillögum sínum til velferðarráðherra fyrir árslok 2011.



Sjá frétt á vef ráðuneytisins.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×