Innlent

Fundu 20 kannabisplöntur

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Kannabis.
Kannabis.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Grafarvogi. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust 20 kannabisplöntur á lokastigi ræktunar. Húsráðendur, tveir karlar á þrítugsaldri, voru yfirheyrðir á vettvangi og játuðu þeir aðild sína. Málið telst upplýst, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni.

Lögreglan segir að fyrrnefnd aðgerð sé liður í að hamla gegn sölu og dreifingu fíkniefna en sem fyrr minnir lögreglan á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja nafnlaust til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×