Ólga meðal félagsmanna VR vegna nýs formanns Erla Hlynsdóttir skrifar 30. mars 2011 15:53
Félagsmenn í VR hafa í auknum mæli í dag haft samband við Bandalag háskólamanna, BHM, til að kanna hver staða þeirra er ef þeir skiptia um stéttarfélag. Nýr formaður VR, Stefán Einar Stefánsson, var kjörinn í dag og eru félagsmenn misjafnlega sáttir við að hann taki við félaginu. Mikil umræða hefur skapast á Fésbókarsíðum um kjörið og fjöldi fólks segist ætla að segja sig úr VR vegna nýs formanns. Stefán Einar þykir umdeildur vegna þátttöku hans í starfi ungliðahreyfingar Sjálfstæðisflokksins. „Það hefur verið svolítið hringt og spurt um rétt í félögunum. Ekkert ofboðslega mikið en samt meira en venjulega," segir Halldór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Huggarðs þjónustuskrifstofu sem sér um fimm af BHM-félögunum. „Það hefur komið þó nokkuð af fyrirspurnum frá félagsmönnum VR," segir hann aðspurður. Almennt er ekki mikið mál fyrir fólk að skipta um stéttarfélag á almennum markaði enda ræður fólk sjálft í hvaða stéttarfélagi það er, svo lengi sem það uppfyllir kröfur félagsins, til að mynda um menntun. Stefán Einar fékk um 20% atkvæða í formannskjörinu. Sú sem næst flest atkvæði fékk hlaut um 18% atkvæða. Kosningaþátttaka var mjög dræm, en tæplega fimm þúsund manns greiddu atkvæði, eða um 17 prósent félagsmanna í VR.
Mest lesið Patrik biðst afsökunar Innlent Grunur um innflutning á fíkniefnum kviknaði við eftirlit Innlent Blöskrar græðgi á kostnað gæða Innlent Hraðskreiður skemmtibátur á sænskum fána tengist rannsókninni Innlent Umfangsmiklar breytingar í menntakerfinu framundan Innlent Fær ekki hjólastólana sína vegna sumarleyfa Innlent Tveir handteknir fyrir að dreifa röngum upplýsingum á netinu Erlent Umferðartafir vegna áreksturs Innlent Veislan tekin af dagskrá FM957 Innlent Rússar þurfi að finna fyrir stríðinu á eigin skinni Erlent Fleiri fréttir Engin fíkniefni reyndust um borð í bátnum Einn slasaður eftir aftanákeyrslu í Mosfellsbæ Tveir yfirheyrðir og enn óvissa um refsiverða háttsemi Fær ekki hjólastólana sína vegna sumarleyfa Mikið álag sem bitnar mest á bráðamóttökunni Fjögur sóttu um embætti yfirdýralæknis Ný aðgerðaáætlun um sýklalyfjaónæmi staðfest Umferðartafir vegna áreksturs Sparkaði í meðvitundarlausan mann og skar annan í andlitið Titringurinn á Sundhnúksgígaröðinni heldur áfram að magnast Hraðskreiður skemmtibátur á sænskum fána tengist rannsókninni Patrik biðst afsökunar Lögregla heldur þétt að sér spilunum og Bolt mætir til leiks í Reykjavík Grunur um innflutning á fíkniefnum kviknaði við eftirlit Umfangsmiklar breytingar í menntakerfinu framundan Blöskrar græðgi á kostnað gæða Þakka skilningsríkum foreldrum og gætu leitað réttar síns Eðlilegt að setja hálfan milljarð í framkvæmdir í Grindavík Dæla vatni úr Bláa lóninu á margföldum krafti Ekki boðlegt að börn séu í „gettó-umhverfi“ Veislan tekin af dagskrá FM957 „Gettó“ í Ármúla og hryðjuverkaógnin í Vínarborg Setja 470 milljónir í viðgerð í Grindavík Miklar skemmdir á bíl eftir að þyrla lenti við hliðina Dagbjört hafi leynt mikilvægum upplýsingum „Það má alveg stríða pínulítið“ Eldur í einu herbergi í íbúðarhúsnæði á Hallgerðargötu „Landsliðið“ búið að skila tillögu og von á vímuefnastefnu Ærin verkefni framundan á þingi og voðaverki afstýrt í Vín „Sorglegt og alvarlegt“ hvernig málum er komið í grunnskólum Sjá meira