Erlent

Fimm létust í skotárás í Hollandi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fólk var harmi slegið vegna skotárásarinnar. Mynd/ afp.
Fólk var harmi slegið vegna skotárásarinnar. Mynd/ afp.
Fimm létust og ellefu særðust í skotárás í Hollandi í morgun. Árásarmaðurinn svipti sig lífi eftir árásina. Skotárásin varð í smábæ, um 25 kílómetrum frá Amsterdam. Bæjarstjórinn segir að maðurinn hafi skotið á fólkið með sjálfvirkri byssu og svo svipt sjálfan sig lífi. Ekki er vitað um ástæður verknaðarins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×