Masters: McIlroy vonast til þess að hafa lært af reynslunni

McIlroy vonast til þess að hann hafi lært af slæmri reynslu sinni frá Opna breska meistaramótinu á síðasta ári þar sem hann var efstur á 63 höggum að loknum fyrsta hringum á St. Andrews í Skotlandi en hann gerði út um vonir sínar á öðrum hringum sem hann lék á 80 höggum.
„Ég upplifði mikil vonbrigði eftir þann hring en eftir á að hyggja þá held ég að hafi lært gríðarlega mikið – og þetta mótlæti er hluti af því að þroskast sem atvinnukylfingur. Ég get lært af þeirri reynslu og ég veit hvernig tilfinning það er að leika á risamóti og vera í efsta sæti eftir fyrsta keppnisdaginn," sagði McIlroy en hann gerði engin mistök á fyrsta hringnum þar sem hann fékk 7 fugla og aðrar brautir lék hann á pari. „Ég hefði vel getað leikið betur, ég fékk tækifærin til þess, en þetta var góð byrjun. Mér líður vel og vonandi get ég haldið áfram að leika vel," sagði McIlroy.
Mastersmótið er í beinni útsendingu á Stöð 2 sport og hefst útsendingin í kvöld kl. 19.00.
Staðan að loknum fyrsta keppnisdegi: Par 72:
65 Rory McIlroy, Alvaro Quiros
67 K J Choi, Y.E. Yang
68 Ricky Barnes, Matt Kuchar
69 Trevor Immelman, Charl Schwartzel, Ross Fisher, Sergio Garcia, Gary Woodland, Geoff Ogilvy, Brandt Snedeker
70 Retief Goosen, Kyung-Tae Kim, Hiroyuki Fujita, Phil Mickelson, Sean O'Hair, Paul Casey, Camilo Villegas, Rickie Fowler, Gregory Havret, Ryan Moore
71 Ryo Ishikawa, Tiger Woods, Miguel Angel Jimenez, Ryan Palmer, Stewart Cink, Angel Cabrera, Fred Couples
72 Steve Stricker, Nick Watney, Hideki Matsuyama, Adam Scott, Anders Hansen, David Toms, Heath Slocum, Jason Day, Alex Cejka, Peter Hanson, D.A. Points, Robert Karlsson, David Chung, Peter Uihlein, Jim Furyk, Luke Donald, Jhonattan Vegas, Lee Westwood
73 Zach Johnson, Jeff Overton, Bubba Watson, Jin Jeong, Jose-Maria Olazabal, Kevin Na, Anthony Kim, Ben Crane, Justin Rose, Bo Van Pelt, Jonathan Byrd, Sandy Lyle (Sco), Tim Clark, Larry Mize, Jason Bohn
74 Jerry Kelly, Charley Hoffman, Rory Sabbatini, Graeme McDowell, Dustin Johnson, Steve Marino, Bill Haas, Yuta Ikeda, Martin Laird, Ian Poulter, Edoardo Molinari
75 Francesco Molinari, Nathan Smith, Davis Love III, Lucas Glover, Lodewicus Oosthuizen, Kevin Streelman, Aaron Baddeley, Hunter Mahan, Robert Allenby, Ernie Els, Carl Pettersson, Stuart Appleby
76 Vijay Singh, Mike Weir, Lion Kim, Mark Wilson
77 Mark O'Meara, Padraig Harrington
78 Ian Woosnam, Ben Crenshaw, Martin Kaymer
79 Tom Watson
80 Arjun Atwal, Craig Stadler
83 Henrik Stenson
Tengdar fréttir

Masters: Tiger er sex höggum á eftir efstu mönnum
Tiger Woods er bjartsýnn á að geta blandað sér í baráttuna um sigurinn á Mastersmótinu í golfi eftir að hafa leikið Augusta völlinn á einu höggi undir pari vallar á fyrsta keppnisdegi risamótsins. "Ég er aðeins sex höggum á eftir efstu mönnum og það er nóg eftir,“ sagði Woods í gær en hann hefur fallið hratt niður heimslistann að undanförnu og er hann í 7. sæti.

Masters: McIlroy og Quiros gáfu tóninn á Augusta
Rory McIlroy frá Norður-Írlandi og Spánverjinn Alvaro Quiros deila efsta sætinu að loknum fyrsta keppnisdegi á Mastersmótinu í golfi á Augustavellinum í Georgíu í Bandaríkjunum. Þeir léku báðir á 7 höggum undir pari eða 65 höggum á fyrsta risamóti ársins. Y.E Yang ig K.J. Choir eru þar á eftir á 5 höggum undir pari. Phil Mickelson hóf titilvörnina með því að leika á -2 eða 70 höggum og Tiger Woods er einu höggi þar á eftir.

Masters: Rástímarnir fyrstu tvo keppnisdagana
Phil Mickelson, sem hefur titil að verja á Mastersmótinu í golfi, verður í ráshóp með Geoff Ogilvy og áhugamanninum Peter Uihlein á fyrstu tveimur keppnisdögunum á fyrsta risamóti ársins. Uihlein sigraði á opna bandaríska áhugamannamótinu á síðasta ári og samkvæmt venju fær hann þann heiður að leika með sigurvegaranum á Mastersmótinu þegar hann hefur titilvörnina.