Innlent

70. íþróttaþing ÍSÍ sett síðdegis

Mynd úr safni / HAG
Sjötugasta íþróttaþing Íþrótta- og ólympíusambands Íslands verður sett í dag. Viðstödd setningarathöfnina verða Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra.

Þingið verður sett klukkan hálf timm í dag og stendur þar til á morgun. Þingið er haldið í Gullhömrum, Grafarholti í Reykjavík.

Fjölmargar tillögur verða teknar fyrir á þinginu, sem fjalla meðal annars um áfengisauglýsingar, fæðubótarefni og siðareglur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×