Erlent

Svona er hinn fullkomni dagur - sjón er sögu ríkari

Suma daga gengur hreinlega ekkert upp og allt virðist vonlaust. En stundum er eins og þú sért óstöðvandi og allt sem þú tekur þér fyrir hendur gengur fullkomlega upp.

Félagarnir Thomas Becker and Sebastian Stahlhofen hjá Patience Productions tóku sig til og gerðu myndband sem á að endurspegla hinn fullkomna dag.

Þó er heldur ólíklegt að nokkur lendi í því að allt gangi jafn ótrúlega vel og þarna sést, og vel má ímynda sér að þeir Becker og Stahlhofen hafi þurft að gera heldur margar atrennur að þessum atriðum.

En sjón er sögu ríkari. Myndbandið fylgir hér með.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×