Erlent

Maður gelti á hund

Óli Tynes skrifar
Urrrrrrrrrrrr
Urrrrrrrrrrrr
Það þykir meiri frétt að maður bíti hund en að hundur bíti mann. Lögreglan í Ohio hefur handtekið mann og ákært hann fyrir að gelta á lögregluhund. Hundurinn var aftur í lögreglubíl og hafði verið skilinn þar eftir meðan lögregluþjónninn sinnti umferðarlagabroti.

 

Þegar hann heyrði hund sinn byrja að gelta eins og óður væri, sneri hann aftur að bílnum. Þar hitti hann fyrir hinn 25 ára gamla Ryan James sem gelti og hvæsti á hundinn. James var vel hífaður. Þegar hann var spurður að því af hverju hann hefði verið að angra dýrið, var svarið -Hann byrjaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×