Golf

McDowell tekur Meistaradeildina fram yfir par þrjú mótið á Masters

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Graeme McDowell.
Graeme McDowell.
Norður-Írinn Graeme McDowell mun ekki taka þátt í par þrjú-mótinu á Masters, sem markar upphaf Masters-vikunnar, því hann getur ekki hugsað sér að missa af leik Chelsea og Man. Utd í Meistaradeildinni í kvöld.

McDowell er mikill stuðningsmaður Man. Utd og tekur því leikinn fram yfir opnunaratriði Masters.

"Mér stóð ekki til boða að byrja nógu snemma. Ég vil þess utan frekar æfa vel, setja síðan lappirnar upp í loft og njóta leiksins. Svona leikir koma ekki það oft. Þetta eru ákveðin vonbrigði en ég mun vonandi taka oftar þátt í Masters," sagði McDowell.

Hann mun spila fyrstu tvo hringina á mótinu með Tiger Woods og verður því mikið í sviðsljósinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×