Erlent

Uppreisnarmenn reyndu að brjóta sér leið inn í Brega

Frá borginni Benghazi
Frá borginni Benghazi Mynd/AFP
Bardagar í Líbíu halda áfram að vera ruglingslegir. Uppreisnarmenn reyndu að brjóta sér leið inn í borgina Brega í dag, en liðsmenn Moammars Gaddafis veittu harða mótspyrnu.

Margar orrustur hafa verið háðar um Brega undanfarnar vikur og ýmist uppreisnarmenn eða liðsmenn Gaddafis ráðið þar ríkjum. Loftárásir Vesturlanda hafa dregið vígtennur úr Gaddafi með árásum á brynsveitir hans og flugvélar.

Engu að síður eru liðsmenn hans miklu betur þjálfaðir og agaðri en uppreisnarmenn. Þeir hafa því oftast yfirhöndina þegar barist er í návígi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×