Erlent

Þakhluti rifnaði af Boeing þotu

Óli Tynes skrifar
Skelfing greip um sig meðal farþega í Boeing 737-300 þotu í Bandaríkjunum um helgina þegar hluti af þaki hennar rifnaði af. Vélin var á leið frá Phoenix til Sakramento með 123 farþega innanborðs. Farþegarnir sem voru næst gatinu segjast hafa séð í bláan himininn.

 

Sem betur fór voru allir með beltin spennt og enginn sogaðist út. Súrefnisgrímur féllu niður og flugmennirnir stungu vélinni til að lækka flugið hratt. Þeir nauðlenti svo á herflugvelli í Arizona og gekk lendingin að óskum. Ein flugfreyja meiddist lítillega en aðra sakaði ekki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×