Erlent

Bandaríkjamenn gefast upp á forseta Jemen

Bandarísk stjórnvöld hafa gefist upp á Ali Abdullah Saleh forseta Jemen og ætla að hætta stuðningi sínum við hann.

Í frétt í New York Times í dag segir að Barack Obama bandaríkjaforseti vilji fá Saleh frá völdum áður en ástandið í Jemen fer algerlega úr böndum.  Saleh hefur hingað til verið einn ötulasti bandamaður Bandaríkjanna í baráttunni gegn hryðjuverkasamtökum í Arabaheiminum.

Um 400 mótmælendur liggja sárir í Jemen eftir mikil átök þar í nótt þar sem öryggissveitir og lögregla beittu skothríð og táragasi gegn mótmælendunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×