Golf

Westwood púttar á teppinu heima fyrir Masters

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Lee Westwood er næstbesti kylfingur heims.
Lee Westwood er næstbesti kylfingur heims. Nordic Photos/Getty Images
Enski kylfingurinn Lee Westwood æfir sig nú að kappi fyrir Masters mótið í golfi sem hefst næsta fimmtudag. Undirbúningur hans fyrir mótið felst meðal annars í því að pútta á teppi til fá tilfinningu fyrir þeim mikla hraða sem er á flötunum á Augusta National vellinum í Georgíu-fylki, Bandaríkjunum.

„Ég hef verið að pútta á teppinu heima því púttin er hvergi hraðari en á Augusta vellinum. Púttstrokan er að verða betri. Sjálfstraustið er mikið,“ segir Westwood sem er næstbesti kylfingur heims um þessar mundir, á eftir Þjóðverjanum Martin Kaymer sem er efstur á heimslistanum.

Masters mótið er fyrsta risamót ársins og varð Westwood í öðru sæti í mótinu á síðast ári á eftir Phil Mickelson. Westwood hefur aldrei unnið risamót á ferlinum og er orðinn langeygur eftir fyrsta sigrinum. Hann hefur verið í topp-3 í fjórum af síðustu fimm risamótum og þykir líklegur til afreka í Masters mótinu. Westwood náði einnig efsta sætinu á heimslistanum síðasta haust og einbeitir sér nú að því að ná fyrsta risasigrinum.

„Ég hlakka til að keppa í risamótunum. Ég hef verið meira í baráttunni í undanförnum risamótum og veit hvað til þarf. Ég er búinn að vera sá besti og nú á ég bara eftir að vinna risamót.“ Allir fjórir keppnisdagarnir á Masters mótinu verða í beinni útsendingu á Stöð2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×