Erlent

Goodluck endurkjörinn forseti Nígeríu

Flest bendir til að Goodluck Jonathan hafi verið endurkosinn forseti Nígeríu í kosningum þar um helgina.

Fyrstu tölur benda til að Goodluck hafi hlotið afgerandi kosningu og að ekki þurfi aðra umferð til að knýja fram sigurvegara.

Í frétt um málið á BBC segir að þrátt fyrir að Goodluck hafi lofað frjálsum og heiðarlegum kosningum séu þegar komnar upp ásakanir um svindl þar sem atkvæðahlutfall í sumum héruðum Nígeríu þykir afbrigðilega hátt. Í þremur þeirra fékk Goodluck yfir 90% atkvæða og í heimahéraði sínu fékk hann 99,63% atkvæða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×