Erlent

Stela kjólahönnun fyrir sauðsvartan almúgann

Líklega verður þetta brúðarkjóll ársins.
Líklega verður þetta brúðarkjóll ársins.
Á sama tíma og hin nýgifta Katrín Middelton sýndi brúðarkjólinn sinn í fyrsta skiptið sátu bandarískir hönnuðir sveittir við sjónvörpin og teiknuðu kjólinn með það að markmiði að fjöldaframleiða hönnunina fyrir sauðsvartan almúgann.

Hönnuðir telja að brúðarkjóllinn eigi eftir að hafa afgerandi áhrif á brúðkaupsmenninguna, ekki endilega vegna þess að kjóllinn sé sérstaklega frumlegur, heldur tákni hann einfaldleika og auðvitað glæsileika.

AP fréttastofan greinir svo frá því að skartgripahönnuðir sitji einnig sveittir við að smíða svipaða eyrnalokka og Katrín bar í brúðkaupinu.

Markmið hönnuðanna er að bjóða venjulegu fólki upp á sama glæsileika og Katrín skartaði í brúðkaupi sínu. Það var Sarah Burton sem hannaði kjólinn hennar Katrínar, en hún starfar hjá Alexander McQueen tískuhúsinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×