Erlent

Sex sjálfsmorðsárásir í Kandahar

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Talibanar hafa heitið hefndum vegna falls Osama Bin Ladens. Mynd/ AFP.
Talibanar hafa heitið hefndum vegna falls Osama Bin Ladens. Mynd/ AFP.
Talibanar hafa gert sex sjálfsmorðsárásir í Kandahar í Afganistan í dag. Árásirnar hafa meðal annars beinst að skrifstofum héraðsstjórans, leyniþjónustu Afganistans og lögreglustöðinni. Alls hafa 23 særst í árásunum, þar á meðal þrír lögreglumenn. Einungis fáeinir klukkutímar eru síðan að Talibanar hétu því að falli Osama Bin Ladens yrði hefnt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×