Erlent

Hvor þeirra var eiginlega skotinn?

Óli Tynes skrifar
Obama og Osama. Obama er til vinstri á myndinni.
Obama og Osama. Obama er til vinstri á myndinni.
Ótrúlega margir bæði fréttamenn og álitsgjafar hafa ruglað saman þeim Barack Obama og Osama Bin Laden. CNN, Fox News, Sky News og Associated press eru meðal þeirra sem hafa ruglast í ríminu. Veslings fréttamaður AP gerði það jafnvel í viðtali við Osa...ég meina Obama sjálfan. Indversk sjónvarpsstöð sagði; Obama skotinn í höfuðið. Og Times of India sagði; Obama fannst með yngstu konu sinni. Danska Extra Bladet sagði frá því að líki Obamas hefði verið sökkt í sæ.

 

Hér á fréttastofunni getum við nú tæpast hlegið að starfsbræðrum okkar. Á Vísi sögðum við einnig frá því að Obama hefði verið skotinn í höfuðið. Og einn fréttamanna okkar hringdi í bandaríska sendiráðið í Reykjavík og bað um viðtal við sendiherrann í tilefni af því að Obama væri allur.

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×