Erlent

Liggja yfir tölvu Bin Ladens

Óli Tynes skrifar
Osama Bin Laden.
Osama Bin Laden.
Her sérfræðinga í Afganistan liggur nú yfir tölvu Osama Bin Ladens sem bandarísku hermennirnir tóku með sér eftir að hafa ráðið hann af dögum. Bæði er verið að skoða harða diskinn en einnig býsnin öll af geisladiskum sem fundust á staðnum.

 

Leyniþjónustumenn vonast til að finna þar hreinan fjársjóð upplýsinga um Al Kaida. Þar gæti verið um að ræða félagatal, njósnara, fjármál, áætlanir og yfirleitt allt sem nöfnum tjáir að nefna í rekstri hryðjuverkasamtaka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×