Erlent

Barnaskóli í Bergen rýmdur eftir hótun

Mikið lið lögreglu er nú við Gimle barnaskólann í Bergen í Noregi en norska blaðinu Verdens Gang barst hótun um að árás yrði gerð í skólanum í dag. Blaðið hafði strax samband við lögreglu og hafa nemendur verið fluttir úr skólanum og eru undir eftirliti lögreglu. Samkvæmt hótunarbréfinu átti blóðbað að eiga sér stað í skólanum og var sérstaklega tekið fram að múslimar yrðu skotmörk.

Enn er óljóst um hvort alvara leynist á bakvið hótunina en lögreglan tekur hana mjög alvarlega og er rannsókn á því hver sendi bréfið komin í fullan gang.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×