Erlent

Mikil leit að sex skátum í Arkansas

Mikil leit stendur nú yfir af hópi sex skáta sem saknað er eftir helgarferð í skóglendi í Arkansas. Skátarnir, sem eru 14 ára gamlir, koma frá Lafayette í Louisiana.

Lögregluyfirvöld í Arkansas eru bjartsýn á að finna skátana á lífi og benda á að foringi þeirra sé með mikla reynslu af óbyggðaferðum.

Mikið úrhelli og þungskýjað er yfir skóglendinu þar sem skátarnir eru taldir vera og hefur það hamlað því að hægt sé að leita þeirra úr lofti. Þá er heldur ekkert farsímasamband á svæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×